25september

Lífsmark.

Ég er á lífi!!!!
Ég er oft búin að kíkja á síðuna og athuga hvort eitthvað lífsmark sé með einhverjum en ekkert séð. Þá fór ég að hugsa um hvort það væri ekki upplagt að gera smá "uppdate" á því hvað hefur verið að gerast hjá okur síðan við sögðum síðast frá. Og ég skal bara vera fyrstBrosandi.
Ég heiti Hjalta og þegar ég skrifaði síðast bjó ég á Snæfellsnesi á jörð sem heitir Dalsmynni. Þar bjó ég með dúdda og vorum við tekin við helmingnum af jörðinni. En síðasta ár fór allt að gerast hjá mér. Ég var orðin hundleið á dúddanum svo ég bara skilaði honum og flutti í sjoppu sem ég var að vinna í þarna rétt hjá. Þar bjó ég í 1 og hálft ár. Ég bara vann og svaf og stundaði böllinSvalur. Svo í september í fyrra tók ég sjoppuna á leigu og rak hana í 3 máunuði. Ég var ein með hana og var með veitinga og bensínsölu og eldaði heimilismat í hádeginu og á kvöldin. Auk þess sem ég tók að mér að vera með 65 kúa bú í viku í nóvember. Í nóvember fóru svo hlutirnir að gerast. Mér var boðin vinna á kúabúi 5 mínútur frá Akranesi, ég varð 26 ára og ég náði mér í mann. Og var svo orðin ólétt í byrjun desember. Síðan í janúar höfum við (kallinn og Hundurinn líka) svo búið hér á Vestri-Reyni við Akranes og ég hef unnið við að mjólka kýr og ímislegt svoleiðis. Það fjölgaði svo í fjölskyldunni því þann 27 ágúst fæddist lítill strákur. Það er það erfiðasta en jafnframt það besta sem ég hef gertBrosandi. Þannig að svona er semsagt staðan á mér núna. Þeir sem eiga leið hjá eru alltaf velkomnir í heimsóknGlottandi.

En hvernig væri að hittast einhverstaðar, einhverntíman?
Nú skora ég á fleiri að segja frá hvað þeir hafa verið að gera síðan síðast. Hvað er að frétta af ykkur krakkarGlottandi.
Þangað til næst, kv Hjalta
25. september 2008 klukkan 12:04

3 athugasemdir
24september

Er einhver á lífi hér?

Verður eitthvað partý í ár eða er stuðið dáið??
24. september 2008 klukkan 15:01

Engin athugasemd
11desember

Annar í Jólum !!




Hvað segiði hvernig er með að endurtaka annan í jólum í fyrra !! Hverjir verða heima og hvernig eigum við að hafa þetta !! Er einhver stemming ???
11. desember 2007 klukkan 10:16

9 athugasemdir
20júní

Humarhátíđ

Jæja, hverjir ætla að mæta á Humarhátíð ?
Veit einhver hvað verður um að vera og hverjir verða að spila?
20. júní 2007 klukkan 23:13

2 athugasemdir
24mars

Jćja gott fólk.

Jæja, ætli það sé ekki komið að því að skrifa eitthvað um sjálfa mig eins og hitt duglega fólkið er búið að geraBrosandi O.k Hjalta heiti ég eins og þið vitið og flutti frá Hornafirði þegar ég var 18 ára. Mörg ykkar hef ég ekki hitt síðan í 10 bekk en önnur oftar. Það var alveg sérstaklega gaman að hittast á fermingarafmælinu í hitteðfyrra, partý sem seint verður toppaðSvalur En nóg um það. Ég bý semsagt á Snæfellsnesi núna, nánar tiltekið í Eyja og Miklaholtshrepp, og er búin að gera síðan "99. Ég bjó á bæ sem heitir Dalsmynni og var þar með blandað bú ásamt manni og tengdaforeldrum og var búin að búa þar í 7 ár þar til fyrir nokkrum vikum að ég ákvað að skila kallinum (verst að hann var dottin úr ábyrgðBrosandi) flutti að heiman og bý núna a.m.k á Vegamótum sem er sjoppa á Snæfellsnesinu. Allir að kíkja við í sumarfríinu! Vegamót er 60 km frá Borgarnesi og 34 km frá Stykkishólmi. Ég á ennþá 31 kind, 23 hænur, hund, 5 hesta og 0 börn. Og svo auðvitað hana Ragnhildi sem býr með mérGlottandi Ég hef ekki farið í hefðbundinn skóla síðan árið í FAS, en farið á allskonar námskeið og er núna að klára 7 helga námskeið í endumenntun á vegum símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Í sumar verð ég á fullu í sjoppunni á Vegamótum, þríf síkla hjá fína og ríka fólkinu fyrir utan það að húkka gæjaKoss
Jæja en nóg um mig í bili, læt koma meira þegar hlutirnir fara að gerast hjá mér!
En endilega höldum áfram að halda þessari síðu ganagandi. Bið að heilsa ykkur öllum.
Kossar og knús, kv Hjalta
24. mars 2007 klukkan 10:56

3 athugasemdir
20mars

Páskarnir?

Hvað syngur í mannskapnum þessa dagana?

Ég fór að hugsa um páskana og er að velta því fyrir mér hvort eitthvað verði um að vera fyrir austan þessa helgi og hvort lýðurinn verði viðstaddur??  Er einhver stemmning í hitting? 
Bara hugdetta. Endilega látið í ykkur heyra og  höldum þessari síðu gangandi!

Með kveðju Heiðdís
20. mars 2007 klukkan 22:57

Engin athugasemd
28janúar

Jerry

Jerry

SÖKNUÐUR

Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,
er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
sameinað
beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.

Ég gái út um gluggann minn.
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig.


28. janúar 2007 klukkan 00:47

Engin athugasemd
13janúar

Guđ blessi Jerry okkar.

Sæl öll sömul.
Mér finst það mjög sniðugt að senda veglegan krans saman og kort til Hörpu og Ingvars. Guð gefi þeim styrk til að takast á við enn eitt áfallið.
       Það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess að einn úr okkar hópi sé horfinn. Það vekur mann svo sannarlega til umhugsunnar um lífið og tilverunna og þá staðreynd að maður veit aldrei hver er næstur. Sláandi staðreind ekki satt!
Vonandi mæta sem flestir til að kveðja hann en ég veit að þeir sem komast ekki hugsa til hans. Og munum svo að njóta lífsins og vera góð hvert við annað:)
meira af mér seinna. Kv Hjalta

13. janúar 2007 klukkan 16:39

Engin athugasemd
13janúar

Til minningar Jerry

Eins og Heiðdís og Svana hafa sagt hér á undan misstum við einn úr okkar hópi síðasta mánudag.Hann verður jarðaður á laugardaginn 20 jan kl: 11 í Hafnarkirkju.
 Þar sem við búum fyrir austan höfum við komist að þeirri niðurstöðu að best væri fyrir okkur að sjá um kaup á krans fyrir jarðaförina. Einnig höfðum við hug á að senda fjölskyldu Jerry´s minningarkort. Það var talað um 1000- kr á mann og hvetjum við alla til að leggja í púkkið. Hafið samband við Jónu í síma 868 7782 eða Möggu í síma 864 1181. Þeir sem voru búnir að hafa samband við Heiðdísi eða Svönu við vitum af ykkur. Endilega látið okkur vita ef það er e-ð sem þið viljið koma á framfæri.
Að lokum viljum við minnast bekkjarfélaga okkar sem hafði alltaf svo mikin húmor fyrir sjálfum sér og öðrum . Blessuð sé minning hans.




 
Nú légg ég augun aftur, 
ó, Guð,þinn náðarkraftur 
mín veri vörn í nótt. 
Æ, virst mig að þér taka, 
mér yfir láttu vaka 
þinn engil svo ég sofi rótt. 
(Foersom/Sveinbjörn Egilsson)

13. janúar 2007 klukkan 04:29

1 athugasemd
12janúar

Hć allir.

Eins og þið flest vitið þá lést Jerry síðastliðinn mánudag og verður hann jarðaður í næstu viku fyrir austan. Við vorum að spá í hvort við bekkjarfélagarnir ættum ekki að taka okkur saman og senda blómakrans með kveðju frá okkur í jarðaförina hans. Endilega hafið samband við okkur, Svönu í síma 8690307 eða Heiðdísi í síma 8689751 og við getum látið ykkar hafa reikningsnúmer til að leggja inn á. Ef þið hafið aðrar hugmyndir endilega látið vita sem fyrst!Kveðja Svana og Heiðdís
12. janúar 2007 klukkan 20:48

Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Könnun

Hvenćr eigum viđ ađ halda bekkjarpartýiđ?